Innlent

Stofnaði lífi átta manna í hættu „í á­bata­skyni og á ó­fyrir­leitinn hátt“

Lovísa Arnardóttir skrifar
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins skoðaði eldvarnir húsnæðisins og fann ýmsa galla á þeim.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins skoðaði eldvarnir húsnæðisins og fann ýmsa galla á þeim. Vísir/Vilhelm

Jóhann Jónas Ingólfsson var nýverið dæmdur til fjögurra mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að brot gegn lögum um brunavarnir í atvinnuhúsnæði sem hann átti. Þar lét hann útbúa búseturými án tilskilinna leyfa og án þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir um brunavarnir. Með því var hann talinn stofna lífi þeirra sem bjuggu í rýminu í hættu.

Fram kemur í dómi að Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafi skoðað eldvarnir hússins að beiðni lögreglu í júní árið 2018 þar sem komu í ljós ýmsir gallar á brunavörnum eins og að engin brunahólfun var til staðar í húsnæðinu til að takmarka útbreiðslu elds og reyks, flóttaleiðir voru ófullnægjandi, loft var klætt auðbrennanlegu plasti og bil veggja og lofts voru fyllt hraðbrennanlegu efni. Þá var ástand raflagna óásættanlegt og skapaði eldhættu. Auk þess fól starfsemin sem fór fram í húsinu í sér íkveikjuhættu og var metin aukin brunahætta vegna mikils eldsmatar í húsnæðinu.

Með þessu var Jóhann talinn stofna „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ lífi og heilsu þeirra manna sem voru búsettir í húsnæðinu í augljósan háska. Í það minnsta átta karlmenn bjuggu í húsnæðinu.

Jóhann Jónas játaði sök í þinghaldi þann 10. apríl. Við ákvörðun refsingar var einnig litið til þess að hann var í ágúst í fyrra sakfelldur fyrir stórfelld skattalagabrot í rekstri fyrirtækja sinna Verktakar já Art2b og Já iðnaðarmenn sem bæði hafa verið afskráð. Þá var hann dæmdur í ellefu mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár.

Brotin sem hér um ræðir voru framin áður en sá dómur var kveðinn upp og er Jóhanni því dæmdur hegningarauki. Litið var til þess að hann stofnaði lífi einstaklinga í hættu en á sama tíma var einnig litið til þess að langt sé liðið frá broti. Rannsókn hafi tafist af ástæðum sem hann ber ekki ábyrgð á. Því var hann dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundins fangelsis.

Flúði land

Fjallað var nokkuð ítarlega um brot Jóhanns Jónasar árið 2021 á vef DV þegar hann var ákærður fyrir skattalagabrot sín. Þar kom þá fram að Jóhann ætti sér langa brotasögu hafi verið dæmdur fyrir bæði kynferðisbrot og fíkniefnasmygl á tíunda áratug síðustu aldar. Þá var hann einnig sagður hafa flúið land eftir að hafa hlotið dóm og komið sér hjá afplánun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×